Þáverandi forseti Bandaríkjanna Barck Hussein Obama rak 35 rússneska stjórnarerindreka úr landi undir áramótin 2016. Rússarnir höfðu 72 klukkustunda frest til að hafa sig á brott.
Forsetinn tilkynnti frekari viðskiptaþvinganir gegn Rússlandi vegna meintra töluvárása rússneskra hakkara í Bandaríkjunum. Rússunum 35 var skipað að hafa sig á brott vegna þessara meintu árása.
Nú hafa Rússar rúmu hálfu ári síðar ákveðið að vísa 755 bandarískum stjórnarerindrekum úr landi í Rússlandi en talið er að um 1200 bandarískir stjórnarerindrekar starfi í Rússlandi í sendiráðinu í Moskvu og á ræðisskrifstofum.
Brottvísun erlendra stjórnarerindreka er liður í milliríkjasamskiptum en er þó afar sparlega notuð aðferð til að sýna fjandskap eða vanþókknun.
Ný ríkisstjórn í Bandaríkjunum hefur þess utan tilkynnt umfangsmikla fækkun starfsmanna í bandaríska utanríkisráðuneytinu. Þeirri tilkynningu er afar illa tekið af starfsmannafélagi ráðuneytisins en starfsmenn þess eru rétt um áttatíu þúsund.
Um 450 rússneskir stjórnarerindrekar vinna í sendirráði Rússlands í Washington D C og á ræðisskrifstofum víða um Bandaríkin.
Stjórnmálaskýrendur segja að þessi ákvörðun hafi ekki umtalsverð áhrif á samskipti Bandaríkjanna og Rússlands sem í forsetatíð Barack Hussein Obama fóru stigversnandi uns þau um skeið voru nánast við alkulsstigið vegna ágreinings um Úkraínu og um Sýrland.