Réðu menn til að skaða áslaugu thelmu

Sigurður G. Guðjónsson lögmaður Áslaugar Thelmu Einarsdóttur sem var sagt upp hjá Orku náttúrunnar seint í haust segir fyrirtækið enn skulda henni skýringar, mál hennar sé enn óuppgert og ON hafi ráðið almannatengslafyrirtæki til að skaða orðspor hennar.

Þetta kemur fram í frétt á visir.is í dag.

Áslaug sem var fyrrverandi forstöðumaður einstaklingsmarkaðar hjá ON.

 Í fréttinni er haft eftir Sigurði að hann og skjólstæðingur hans telji málinu ekki lokið þó fyrir liggi skýrsla innri endurskoðunar Reykjavíkurborgar. Málið snúist ekki um að Áslaugu hafi verið sagt upp heldur hvernig að því var staðið, segir Sigurður og bendir á að ekkert hafi verið til í því að hún hafi verið lélegur starfskraftur, það hafi verið komið frá almannatenglunum sem voru réðnir til að brjóta Áslaugu á bak aftur. „Þegar kvartað hefur verið undan kynbundu áreiti koma jafnréttislög til sögunnar“, bendir Sigurður á.

Fréttina á visir.is má lesa hér  í heild sinni.