Rebecca: „Enginn í fyrir­tækinu hefur raun­veru­lega rætt við mig“

Dala­maður ársins Rebec­­ca C­at­hrine Kaad Osten­­feld segist sár yfir því að hafa ekki fengið sím­tal frá einum einasta for­svars­manni Sam­kaupa í kjöl­far upp­sagnar hennar í Kram­búðinni í Búðar­dal.

Fréttablaðið greinir frá.

Rebeccu var sagt upp störfum í Krambúðinni í Búðardal á mánudag eftir að hafa starfað þar í þrettán ár. Ástæða uppsagnarinnar var sögð skipulagsbreyting en yfirmaður hennar segir hana hafa talað of mikið.

Frétta­blaðið hafði í gær eftir Gunni Líf Gunnars­dóttur, fram­­kvæmda­­stjóra Mann­auðs-og sam­­skipta­­sviðs Sam­­kaupa að standa hefði mátt betur að upp­sögn Rebeccu. Sam­kaup hyggðust draga lær­dóm af málinu.

Þá sagði Gunnur að hún hefði heyrt í Rebeccu til að heyra hennar hlið. Rebec­ca segir einungis um hafa verið að ræða Face­book skila­boð og segist sárt sakna þess að heyra nokkuð í for­svars­fólki Sam­kaupa.

Rebec­ca segir að hún vilji fyrst og fremst leið­rétta það að fyrir­tækið hafi haft sam­band við sig líkt og haldið hafi verið fram. 

„Enginn í fyrir­tækinu hefur raun­veru­lega rætt við mig og sam­skiptin eru bara frosin. Ég veit ekkert hvað ég vill annað en bara það að það sé ekki logið vegna þessa máls. Þá er nú betra að segja ekki neitt frekar en að ljúga.“

Rebec­ca segist meyr yfir stuðningi sem hún hafi fundið fyrir í sam­fé­laginu. „Síminn hefur ekki stoppað. Ég er mjög þakk­lát.“

Umfjöllunina má lesa í heild sinni á vef Fréttablaðsins.