Raunávöxtun Lífeyrissjóðs verzlunarmanna á síðasta ári nam rífum 10% og eru eignir hans nú metnar á 584 milljarða. Það er því ljóst að stjórnendur hans og sjóðfélagar geta haldið upp á 60 ára afmæli sjóðsins með reisn.
Sjóðurinn hefur stækkað og dafnað frá því hann var settur á fót árið 1956, en í byrjun voru sjóðfélagar hans 200 talsins og hafði þeim fjölgað um 500 undir lok stofnársins. Greiðandi sjóðfélagar eru nú 49 þúsund og námu iðgjaldagreiðslur til sjóðsins um 22 milljörðum króna.
Að því er fram kemur í tilkynningu frá sjóðnum í dag voru fjárfestingartekjur hans 64 milljarðar á síðasta ári og skiluðu allir eignaflokkar jákvæðri ávöxtun. Tryggingafræðileg staða sjóðsins styrktist verulega og er nú með því betra sem gerist meðal lífeyrissjóða.
Lífeyrissjóður verzlunarmanna greiddi um 14 þúsund lífeyrisþegum alls 10,5 milljarða króna í lífeyri úr sameignardeild á árinu 2015. Þetta eru 9% hærri lífeyrisgreiðslur en árið á undan, en lífeyrisþegum fjölgaði um 7,6% á sama tíma.
Ársfundur sjóðsins verður haldinn þriðjudaginn 15. mars, kl. 18 á Grand Hótel Reykjavík.