Rasísk skila­boð límd á bíl mæðgina: „Þetta er snarlasið og mjög ó­þægi­legt"

Mæðgin lentu í leiðin­legri lífs­reynslu þegar þau voru á ferð um Snæ­fells­nes þar sem þau voru í sumar­fríi. Þau Magnús Secka og Sara Magnús­dóttir tóku eftir að ein­hver hafi límt lím­miða á hliðar­spegil á bíl þeirra eftir að þau höfðu stoppað á Vega­mótum í Snæ­fells­nesi.

Á lím­miðanum stóð: „If you are black or brown plea­se lea­ve this town“ eða „Ef þú ert brúnn eða svartur vin­sam­legast farðu úr bænum.“

Haturs­glæpur annars staðar en á Ís­landi

Í sam­tali við Fréttablaðið segir Magnús þetta hafa verið skrítna og ó­hugnan­lega lífs­reynslu. Móðir hans Sara segir verknaðinn flokkast sem haturs­glæp annars staðar í heiminum og vonast til þess að þeir seku náist.

Þau Sara og Magnús rétt litu inn á Vega­mót í ör­fáar mínútur en á meðan tóku ó­prúttnir aðilar sig til og límdu lím­miðann á hliðar­spegilinn, þeim megin sem Magnús sat. „Þetta er snarlasið og þegar maður fer að spá í því, mjög ó­þægilegt og fer­legt bók­staf­lega,“ segir Sara um málið á Face­book.

Hún segir þrjá Ís­lendinga hafa staðið fyrir utan sjoppuna þegar þau fóru inn, fáir hafi verið á svæðinu en segist þó ekki geta sagt til um hverjir voru þarna að verki. „Það þarf að berjast gegn þessu og það má mögu­lega rekja þetta ef grennslast er fyrir kringum þessa síðu hvernig þetta gerist ein­fald­lega,“ segir Sara og hvetur fólk til að deila færslunni sem víðast.