Rann­veig Odds­dóttir ó­sátt með í­þrótta­frétta­menn: „Mikið svaka­lega er ég orðin þreytt á þessari kynja­slag­síðu“

Rannveig Oddsdóttir, lektor við Háskólann á Akureyri og hlaupagarpur, er orðin þreytt á kynjaslagsíðu sem hún verður var við í fréttaumfjöllun um Íþróttir og spyr í færslu sem hún birtir á Facebook-síðu sinni „er virkilega ekki hægt að breyta þessu.“ Tilefni færslunar er nýleg frétt sem blaðamenn mbl.is birtu um hlaupamót sem haldið var í Vestmanneyjum fyrir skömmu, hið svokallaða Puffin Run.

Fréttin segir Rannveig vera „skólabókardæmi“ um gamaldags fréttamennsku þar sem konur og afrek þeirra eru hafðar í neðanmálsgreinum við umfjöllun sem snúist í meginn atriðum um afrek karla í íþróttum.

Í umfjölluninni um mótið er horft fram hjá afrekum Andreu Kolbeinsdóttur í keppninni, sem bætti met Rannveigar um 8 mínútur, að mati og gengi Arnars Péturssonar gert betri og ítarlegri skil.