Stykkishólmur hefur sent bréf á fyrrverandi íbúa bæjarins þar sem þeir eru hvattir til að snúa aftur. Í bréfinu er fólk beðið um að meta kosti þess að flytja aftur til bæjarins, tímabundið eða til lengri tíma. Er þeim svo bent á úrræði sem aðstoða þeim við að flytja og hefja þar störf.
Það sem er dularfullt við bréfið er hvernig þeir vita hverjir hafa búið í bænum. Rannveig nokkur bendir á þetta á Twitter og segir:
„Ég var síðast með lögheimili þarna árið 1998 (10 ára). Hvernig er ég að fá þetta bréf?“
Henni er þá svarað um að kannski sé bærinn með sína eigin leyniþjónustu:
„Leyniþjónusta Stykkishólms er með þig á skrá sennilega.“