Rannsóknir þurfa að aukast um 50%

Sigríður Mogensen sviðsstjóri hugverkasviðs Samtaka iðnaðarins er gestur Markaðstorgsins í kvöld kl. 21:30. Sigríður segir að hugverkaiðnaðurinn sé um 7% af öllum launum á landinu en ef allt er talið, sé það örugglega töluvert meira. En til þess að auka vægi hugverka þurfi að hafa framtíðarsýn og gera skattaumhverfið meira aðlaðandi. Þá vanti líka árangursmælingar að hálfu ríkisins og að afnema þak fyrir endurgreiðlsu. Rannsóknir og þróun eru um 2% af þjóðarframleiðslu en þurfa að vera 3% árið 2024 sem er 50 prósenta aukning. Sigríður segir að við eigum langt í land að ná því sjálfsagða marki.