Lést 500 metrum frá landspítalanum: saksóknari með myndskeið - rannsókn lokið vegna andláts ungrar konu

Héraðssaksóknari hefur lokið rannsókn sinni á tildrögum þess að ung kona lést í apríl síðastliðnum í kjölfar afskipta lögreglu. Kolbrún Benediktsdóttir, varahéraðssaksóknari, segir í samtali við Vísi að málið sé nú komið til ákæranda hjá embættinu, sem muni taka ákvörðun um saksókn.

Kolbrún vildi að öðru leyti ekki tjá sig um málið og svaraði því ekki hversu margir lögreglumenn hefðu verið til rannsóknar vegna andláts konunnar, en samkvæmt heimildum Hringbrautar voru þeir þrír til fjórir. Embætti héraðssaksóknara rannsakar öll atvik þar sem manneskja lætur lífið í tengslum við störf lögreglu, óháð því hvort grunur sé til staðar um refsivert brot.

Lést aðeins 500 metrum frá Landspítalanum

Líkt og Hringbraut greindi frá lést konan, sem fædd var árið 1994, í bakgarði við íbúðarhús við Snorrabraut þann 9. apríl síðastliðinn. Samkvæmt heimildum Hringbrautar var hún í aðeins 500 metra fjarlægð frá bráðamóttöku Landspítalans þegar hún fór í hjartastopp.

Stúlkan var afar smágerð og í geðrofi vegna neyslu að sögn foreldra hennar. Hún hafði verið í samkvæmi þar sem mikið var um eiturlyf. Þrír lögreglubílar komu á vettvang og lögregluþjónar fóru á eftir stúlkunni sem var í miklu ójafnvægi. Þrír til fjórir lögregluþjónar höfðust svo handa við að reyna að yfirbuga stúlkuna. Eftir að þeir náðu að yfirbuga hana fór hún í hjartastopp.

Lögregluþjónarnir hófu þá strax endurlífgun og um leið var kallað eftir sjúkrabíl. Sjúkrabíll kom sex mínútum síðar á vettvang. Þar reyndu sjúkraflutningamenn endurlífgun með hjartastuðtæki. Um tuttugu mínútum eftir að lögregluþjónar yfirbuguðu stúlkuna var hún flutt úr garðinum. Þá vakti athygli að lögregluþjónarnir ávörpuðu stúlkuna ítrekað með röngu nafni og töldu að hún héti Ester, sem er rangt. Svo virðist sem lögreglumenn á staðnum hafi talið að þeir ættu í samskiptum við aðra manneskju.

Í frétt RÚV um málið sagði að stúlkan hafi verið í hjartastoppi í 40 mínútur. Samkvæmt öruggum heimildum Hringbrautar var stúlkan frá því hún hljóp inn í garðinn við Snorrabraut þar í 20 mínútur en garðurinn er eins og áður segir í um 500 metra fjarlægð frá gjörgæsludeild Landspítalans. Ef hjartastoppið varði í 40 mínútur hefur stúlkan verið í sjúkrabíl í 20 mínútur eftir að hún var flutt úr garðinum.

Foreldrar gagnrýndu aðferðir lögreglu

Í fréttum Stöðvar 2 þann 11. apríl kom fram að foreldrar stúlkunnar höfðu gagnrýnt afskipti lögreglu og talið að ekki hefði verið beitt réttum aðferðum. Þá hefði liðið of langur tími þar sem dóttir þeirra hefði verið látin afskiptalaus í hjartastoppi. Í frétt Mbl.is vegna málsins kom fram að stúlkan hafi verið handjárnuð á höndum og fótum. Heimildarmenn Hringbrautar telja þó að svo hafi ekki verið. Með stúlkunni var ungur maður og gaf hann samkvæmt heimildum Hringbrautar einnig skýrslu hjá héraðssaksóknara.

Stúlkan hafði verið í eiturlyfjaneyslu en hún byrjaði seint í fíkniefnum, 22 ára gömul. Hún hafði ítrekað reynt að hætta neyslu og var án fíkniefna í hálft ár í fyrra. Þá sagði einn heimildarmaður Hringbrautar að hann hefði rekist á hana á AA-fundi skömmu áður en hún lést. Foreldrar stúlkunnar segja að stúlkan hafi verið í geðrofi og að það hafi fyrst gerst mánuði áður.

Á spítalanum kom svo í ljós að stúlkan hafði hlotið mikinn heilaskaða vegna súrefnisskorts og lést hún um morguninn. Þegar foreldrar stúlkunnar komu á vettvang var stúlkan í öndunarvél en var í raun látin. Er það skoðun foreldra að lögregla hefði frekar átt að sprauta stúlkuna niður. Vilja þau vita nákvæmlega hvað gerðist og með hvaða hætti. Þar sem rannsókn á andláti dóttur þeirra er nú lokið færast þau því nær sannleikanum.

Myndskeið til af atvikinu

Hringbraut ræddi við Ólaf Þór Hauksson héraðssakóknara, sem vildi ekki staðfesta hvort til væri myndskeið af því sem gerðist. Samkvæmt öruggum heimildum Hringbrautar náðist þó atvikið á myndband og fór inn á borð til héraðssaksóknara. Myndskeiðið hefur vísast vegið þungt í rannsókn málsins. Sagði Ólafur í samtali við Hringbraut að lögð væri áhersla á að fá sem allra gleggsta mynd af því sem gerðist.