Rannsókn lokið á brunanum í jórufelli - tveir unglingar voru í íbúðinni þegar eldurinn kom upp

Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu hefur lokið rannsókn sinni á bruna í íbúð fjölbýlishúss sem átti sér stað í Jórufelli í Reykjavík aðfaranótt sunnudags. Leiddi hún í ljós að eldurinn hafi kviknaði í svefnherbergi íbúðarinnar. Ástæða eldsupptakanna var sú að farið var óvarlega með eld.

Tveir unglingspiltar voru heima þegar það kveiknaði í íbúðinni, en þeir komust báðir út úr íbúðinni á aðstoðar slökkviliðs. Öðrum íbúum í stigaganginum var gert að yfirgefa íbúðir sínar á meðan slökkviliðið réð niðurlögum eldsins. Íbúðin, þar sem eldurinn kom upp, er töluvert skemmd. Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu segist ekki geta veitt frekari upplýsingar um málið að svo stöddu.