Rannsókn fme

Fjármálaeftirlitið (FME) rannsakar meint brot á lögum um verðbréfaviðskipti tengdum viðskiptum með bréf í samsteypunni Icelandair Group. Markaðurinn fylgirit Fréttablaðsins segir frá þessu.

Gengi bréfa í félaginu hefur hækkað um liðlega 20% eftir að gengið lækkaði nokkuð fyrr á þessu ári.

Icelandair Group sendi tilkynningu til Kauphallarinnar 1. febrúar sl. þar sem afkomuspá árið 2017 var lækkuð.

Viðvörun þessi kom afar flatt upp á fjárfesta.

Félagið fékk svo í maí sl. upplýsingar um að starfsmaður þess hefði stöðu grunaðs manns í rannsókn FME vegna meintra brota á lögum um verðbréfaviðskipti.

Þessi starfsmaður er í leyfi frá störfum þar til rannsókn FME er lokið.

Nánar www.fme.is  www.visir.is