Rannsaka á fleiri bankasölur

Við upphaf þingfundar í dag kl.15 var vitnað í samþykkt Alþingis frá haustinu 2012 um að rannsaka sölu á Fjárfestingabanki atvinnulífsins, Landsbankanum og Búnaðarbanka saman. Svandís Svavarsdóttir, þingflokksformaður VG og Oddný G. Harðardóttir, Samfylkingu mæltust báðar til þess að farið væri nánar í fyrri einkavæðingar banka. Oddný nefndi að nú væri afmörkuð rannsókn lokið en nauðsynlegt væri að fá heildarmyndina á bankasölum fyrri tíðar.