Rangt staðið að borgunarsölu

Forkólfar Bankasýslu ríkisins gagnrýna stjórnendur Landsbankans harðlega fyrir söluna á hlut sínum í Borgun, en á fundi fjárlaganefndar í gærmorgun kom fram hjá þeim að setja hefði átt hlut­ina í opið sölu­ferli; rökstuðningur bankans fyr­ir því öndverða sé allsendis ófull­nægj­andi.

Í máli forráðamanna Banka­sýsl­unnar kom jafnframt fram að sú leið sem far­in var við umrædda sölu hafi valdið bank­an­um tjóni og skert trú­verðug­leika og traust bank­ans. Telja þeir það vera al­var­legt mál og leggja áherslu á að Landsbankinn end­ur­heimti traust eig­enda sinna, viðskipta­vina og fjár­festa sem og al­menn­ings - og hafa í því efni óskað eftir tillögum af hálfu bankans í þá veru. 

Í bréfi sem Banka­sýsl­an hef­ur sent fjár­málaráðherra seg­ir orðrétt að það sé niðurstaða at­hug­un­ar Banka­sýsl­unn­ar að \"sölumeðferðin hafi varpað veru­leg­um skugga á ár­ang­ur Lands­bank­ans und­an­far­in miss­eri og að fag­leg ásýnd bank­ans og stjórn­enda hans hafi beðið hnekki.“

Í bréfinu segir ennfremur að bankaráð Lands­bank­ans verði að grípa til viðeig­andi ráðstaf­ana til að end­ur­heimta það traust sem bank­inn tapaði vegna sölumeðferðar­inn­ar: \"Fer stofn­un­in fram á að hlut­höf­um í Lands­bank­an­um hf. verði hið fyrsta gerð grein fyr­ir því með hvaða hætti bankaráðið tel­ur rétt að bregðast við og ekki síðar en tveim­ur vik­um fyr­ir aðal­fund sem fram fer þann 14. apríl nk.“