Doktor Helgi Gunnlaugsson, afbrotafræðingur og prófessor í félagsvísindum við Háskóla Íslands, verður viðmælandi í fréttaskýringaþættinum Kvikunni á Hringbraut í kvöld.
Í þættinum ræðir Helgi hvaða aðferðir gagnist best gegn glæpum. Vopnaburður lögreglu verður krufinn og lýsir Helgi mikilvægi samræðu og lempni meðal lögreglumanna umfram aukna vopnanotkun sem stundum leiði til gagnsóknar, það er að undirheimarnir vígbúist.
Einnig lýsir prófessorinn þeirri skoðun sinni sem byggist á umfangsmiklu rannsóknarstarfi að ekki sé rétt að stimpla fólk á sakaskrá fyrir það eitt að vera tekið með neysluskammt af t.d. marijúana. Í mörgum tilvikum sé um menningarbundna forvitni að ræða hjá ungu fólki, það prufi fíkniefni sem nú teljast ólögleg. Það sé vont skref að lenda ungur á sakaskrá og geti valdið félagslegri útskúfun, vandræðum í vinnu eða námi. Telur prófessorinn best að fallið verði frá þessu. Afglæpavæðing gegn neysluskömmtum léttra fíkniefna sé skynsamlegt skref en Helgi talar þó ekki fyrir lögleiðingu efna.
Þá verður rætt við Katínu Oddsdóttur, formann Stjórnarskrárfélagsins um stöðu nýrrar stjórnarskrár. Katrín ræðir vonbrigði þeirra sem vilja breyta grunnlögum landsins með tæpitungulausum hætti en telja má útilokað að kosið verði um breytingar á stjórnarskrát samhliða forsetakosningum næsta vor eins og vonir stóðu til.
Kvikan á Hringbraut er í umsjá Börns Þorlákssonar og verður sýnd klukkan 21.30 í kvöld, endursýnd kl. 23.30.