Lögmaður Samherja gagnrýnir fréttaflutning Ríkisútvarpsins í gær og segir að ranglega hafi verið haldið fram að niðurfelling sérstaks saksóknara á kæru Seðlabanka Íslands hefði byggt á því að skort hefði samþykki ráðherra á reglum bankanas um gjaldeyrismál.
Rætt var við Katrínu Jakobsdóttur forsætisráðherra í kvöldfréttum í gær um nýfallin dóm Hæstaréttar í máli Seðlabanka Íslands gegn Samherja hf. Hæstiréttur staðfesti á fimmtudaginn niðurstöðu héraðsdóms um ógildingu ákvörðunar Seðlabanka Íslands um að leggja stjórnvaldssekt á Samherja. Seðlabankinn hafði til rannsóknar ætluð brot fyrirtækisins á reglum um gjaldeyrismál og í apríl 2013 beindi Seðlabankinn kæru til embættis sérstakst saksóknara vegna brotanna.
Katrín sagði í fréttum að dómurinn væri ekki góður fyrir bankann, sem hefði tapað málinu fyrst og fremst vegna formsatriða.
Nánar á
https://www.frettabladid.is/frettir/gagnrnir-endurteknar-aviringar-selabankans