Erlendar rannsóknir sýna að afar sjaldgæft er að rangar sakargiftir komi upp í nauðgunarmálum. Þetta segir Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, sviðsstjóri lögfræðisviðs við Háskólann á Bifröst og fyrrverandi saksóknari. Ríkisútvarpið segir þessa frétt.
Þorbjörg Sigríður segir það nýtt að nánast um leið og kæra um kynferðisbrot sé lögð fram hér á landi komi á móti kæra um rangar sakargiftir.
Mikil umræða hefur orðið á samfélagsmiðlum um rangar sakargiftir bæði vegna Hlíðamálsins sem og meintrar hópnauðgunar þar sem sýknað var í Héraðsdómi Reykjavíkur sl. föstudag. Margir hafa staðhæft að mun algengara sé að logið sé sökum upp á menn í kynferðisbrotamálum en í öðrum málum. Ekkert virðist renna stoðum undir þetta samkvæmt þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið.