Ríkisstjórn Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar hefur án fordæma gripið inn í ritstjórnarlegt sjálfstæði RÚV „þar sem ríkisstjórnin hefur tekið sér beint dagskrárvald með fjárframlagi sem bundið er tilteknu dagskrárframboði. Sú ákvörðun er í bága við þær grundvallarhugmyndir um fjölmiðla- og tjáningarfrelsi sem liggja almannaþjónustumiðlum til grundvallar.“
Svo segir í yfirlýsingu nokkurra yfirmanna Rúv sem send var stjórn Ríkisútvarpsins í gær og sætir tónninn nokkrum tíðindum.
Kjarninn greinir frá yfirlýsingunni en þeir stjórnendur og ábyrgðarmenn dagskrár Ríkisútvarpsins sem lýsa áhyggjum sínum af „ákvörðun ríkisstjórnar Sigmundar Davíðs Gunnlaugssonar sem ógna ritstjórnarlegu sjálfstæði Ríkisútvarpsins.“ eru Rakel Þorbergsdóttir fréttastjóri, Þröstur Helgason, dagskrárstjóri Rásar 1, Frank Hall, dagskrárstjóri Rásar 2, Skarphéðinn Guðmundsson, dagskrárstjóri sjónvarps og Ingólfur Bjarni Sigfússon, vef- og nýmiðlastjóri.
Rótin að bréfinu eins og kemur fram í Kjarnanum er sú ákvörðun ríkisstjórnarinnar að leggja RÚV til 175 milljóna króna viðbótarframlags sem skilyrt er til notkunar í kvikmynda- og þáttagerð. „Þetta viðbótarframlag átti að koma til móts við fjárþörf RÚV í ljósi þess að ríkisstjórnin vildi ekki draga til baka skerðingu á útvarpsgjaldinu um komandi áramót.“
Í yfirlýsingunni segir einnig skv. Kjarnanum „að sú stefnumarkandi ákvörðun ríkisstjórnarinnar að lækka útvarpsgjaldið muni óhjákvæmilega leiða til mikillar röskunar á dagskrá allra miðla og draga úr getu RÚV til að standa undir lögbundnu hlutverki sínu“.
Athygli vekur að útvarpsstjóri, Magnús Geir Þórðarson, riti ekki undir yfirlýsinguna, en haldið hefur verið fram að Illugi Gunnarsson menntamálaráðherra hafi hvatt hann til að sækja um stöðu útvarpsstjóra um síðustu áramót. Nú fyrir jólin varð Illugi undir í ríkisstjórninni og náði ekki fram frumvarpi sínu sem hefði tryggt Rúv meiri tekjur á næsta ári en raunin varð.