Forseti Íslands afhenti í dag verðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar við hátíðlega athöfn í Háskólanum í Reykjavík. Verðlaunin í ár féllu í skaut Rakelar Garðarsdóttur fyrir störf á sviði siðferðis– og umhverfismála.
Rakel Garðarsdóttir stofnaði velferðarsamtökin Vakandi upp á sitt einsdæmi en samtökin berjast fyrir minni sóun matvæla, en hún var sem kunnugt er með þáttinn Neytendavaktin á Hringbraut síðasta vetur sem fjallaði um það efni. Síðan að samtökin voru stofnuð í ársbyrjun 2014 hefur orðið mikil vitundarvakning og viðhorfsbreyting í samfèlaginu um sóun á mat, að því er segir í tilkynningu frá aðstandendum verðlaunanna. Kemur þar fram að fyrir síðustu jól hafi Rakel gefið út bók í nafni Vakandi sem er í senn fróðleg og nytsamleg. Nú stendur hún í fjáröflun fyrir heimildamynd sem fjallar um sóun á mat og tískufatnaði.
Rakel mun í haust verða annar tveggja umsjármanna þáttarins Ég bara spyr á Hringbraut þar sem neytendamál verða líka í brennidepli.
JCI hreyfingin á Íslandi veitir árlega hvatningarverðlaunin Framúrskarandi ungir Íslendingar og hefur veitt þau samfleitt frá árinu 2002. Árlega er kallað eftir tilnefningum sem dómnefnd tekur við og velur topp 10 hóp og sigurvegara. Í dómnefnd í ár voru: Ari Kristinn Jónsson rektor HR, Katrín Jakobsdóttir, formaður vinstri grænna og alþingiskona, Kjartan Hansson landsforseti JCI og Vilborg Arna Gissurardóttir ævintýrakona og pólfari. Forseti Íslands, verndari verkefnsins, afhendir verðlaunin auk þess að afhenda öllum í topp 10 hópnum viðurkenningu.
Eva Brá Önnudóttir baráttukona í málefnum námsmanna, Georg Lúðvíksson stofnandi Meniga, Gísli Matthías Auðunsson matreiðslumaður, Helgi Sveinsson heimsmeistari í spjótkasti, Katrín Tanja Davíðsdóttir heimsmeistari í crossfit, Kristín Sveinsdóttir óperusöngkona, Kristjana Ásbjörnsdóttir doktor í faraldsfræðum, Snædís Rán Hjartardóttir baráttukona um mannréttindi og Ævar Þór Benediktsson leikari og vísindamaður.