„Nú stefnir í enn meira neyðarástand í leikskólamálum í Reykjavík vegna starfsskerðingar eða lokunar fjölda leikskóla sem hafa orðið myglu og áratuga löngu viðhaldsleysi að bráð. Þrátt fyrir síendurtekin loforð Samfylkingarinnar um að brúa bilið milli fæðingarorlofs og leikskólans hefur innritunaraldur raunar farið hækkandi á mörgum leikskólum og nú stefnir í að börn komist ekki að fyrr en hátt í þriggja ára gömul í einhverjum leikskólum,“ segir Ragnhildur Alda Vilhjálmsdóttir, borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins.
Ragnhildur skýtur föstum skotum á Samfylkinguna í nýjum skoðanapistli sínum í Fréttablaðinu.
„Viðhaldsfælni allra meirihluta Samfylkingarinnar virðist vera inngróin í erfðamengi hennar enda hafa bæði leikskóla- og grunnskólabyggingar verið illa hirtar síðan 2008. Samfylkingin hefur innleitt metnaðarleysi í málefnum barna í borginni sem birtist ekki síst í skólabyggingum og umhirðu þeirra,“ segir Ragnhildur jafnframt
Hún rekur sögu Melaskóla í Vesturbæ sem hún segir merkilega sögu, „sérstaklega fyrir það hversu táknrænn skólinn er fyrir ríkjandi viðhorf í uppbyggingu barnaskóla sem og annarra opinbera bygginga á þessum tíma.“
Að sögn Ragnhildar þótti byggingin mikið prýði og að hún hafi leikið lykilhlutverk í móttöku erlendra þjóðhöfðingja. „Mér þykir stundum gleymast að borgir eru líka söfn og það eru þessar byggingar sem og litlu bárujárnshúsin sem trekkja að og segja sögu íbúa borgarinnar. Allt eru þetta miklar menningarminjar að mínu mati og fyrir vikið hefur sinnuleysi borgaryfirvalda gagnvart Melaskóla verið sérlega dapurlegt,“ segir hún jafnframt.