Ragnhildur steinunn um karlaveldið

Um 91 prósent þeirra sem fara með fé á Íslandi eru karl­ar, að því er fram kom í máli Ragn­hild­ar Stein­unn­ar Jóns­dótt­ur á morg­un­fundi Sam­taka at­vinnu­lífs­ins og Íslands­banka um jafn­rétt­is­mál sem hald­inn var á Hilton Nordica í liðinni viku undir. Fundurinn bar yf­ir­skrift­ina „Erum við for­ystuþjóð“?

Ragn­hild­ur Stein­unn gaf nýverið út bókina For­ystuþjóð, ásamt Eddu Her­manns­dótt­ur, samskiptafulltrúa Íslandsbanka.

Ragn­hild­ur nefndi að á Íslandi væri laga­legt jafn­rétti mikið, en pott­ur væri þó enn víða brot­inn í jafn­rétt­is­mál­um. Þrír æðstu stjórn­end­ur Seðlabanka Íslands væru karl­ar, auk fjár­málaráðherra sem væri karl, nær all­ir stjórn­end­ur líf­eyr­is­sjóða væru karl­ar, og aðeins 9 prósent fram­kvæmda­stjóra stórra fyr­ir­tækja á Íslandi væru kon­ur.

Sú væri staðan þótt konum hefði fjölgað á Alþingi og tvær konur væru nú bankastjórar stærstu bankanna. Ragn­hild­ur lauk máli sínu með því að segja að jafn­rétti kynj­anna væri ekki kvenna­mál, þó svo að nán­ast all­ir fund­ar­gest­ir væru kon­ur.