Ragnhildur ósátt við umfjöllun um kristján: „hann vinur minn gamli er ekki siðblindur sjálfstæðismaður undir verndarvæng lögreglu““

„Það er hörmulegt að horfa upp á einstaka fjölmiðla nánast fagna skelfilegum viðburðum í lífi gamals vinar míns. Þessi góði drengur, með glæstan feril sem lögfræðingur og kennari, er núna djúpt sokkinn fíkill. Starfið horfið, heimili hans undirlagt vikum saman af drykkju og dópi hans og neyslufélaga hans og nú hefur hann verið handtekinn, sakaður um skelfilegan glæp gegn ungri konu.“

Þetta segir hin reynda fjölmiðlakona Ragnhildur Sverrisdóttir og talskona auðkýfingsins Björgólfs Thor. Ragnhildur kemur Kristjáni Gunnari Valdimarssyni, lektor við Háskóla Íslands, til varnar á Facebook. Hún segir Kristján vera vin sinn, þá sé hann bæði góður og velmenntaðaður drengur. Kristján var úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna gruns um nauðgun og frelsissviptingu.

Ragnhildur segir fréttirnar ömurlegar en segir fjölmiðla ekki leiða hugann að því að fíkn Kristjáns stýri gjörðum hans.

„Og fávitar í kommentakerfum afgreiða málið með því að vísa til þess að þarna fari sjálfsagt siðblindur Sjálfstæðismaður! Sem í þokkabót njóti sérstakrar verndar lögreglunnar! Hann vinur minn gamli er ekki siðblindur Sjálfstæðismaður undir verndarvæng lögreglu.“

Þá segir Ragnhildur einnig: „Hann er fársjúkur fíkill, sem nú virðist hafa náð botninum á skelfilega stuttum tíma, ferillinn glæsti rústir einar og þá er ónefnt hvaða áhrif þetta hefur allt á alla hans ættingja og vini, að ógleymdri ungu konunni. Fjölmiðlum verður stundum tíðrætt um „mannlega harmleiki“. Þegar einn slíkur blasir við þá ríkir hins vegar Þórðargleðin umfram öllu.“

Ragnhildur er gagnrýnd fyrir þessi skrif. Illugi Jökulsson rithöfundur segir einfaldlega:

„Þetta er ekki góður pistill, Ragnhildur.“

Þá segir Trausti Salvar Kristjánsson, blaðamaður á Eyjunni: „Leitt að svo reyndur blaðamaður falli í svona meðvirknisgryfju, þó svo um sé að ræða gamlan vin. Allir helstu miðlar hafa fjallað um málið eftir að DV birti fyrstu umfjöllun. Hvaða miðlar eru að næstum því \"fagna\" þessu? Og af hverju á fíknin að bjarga þessum manni frá umfjöllun vegna glæpsamlegrar hegðunar sem augljóslega á erindi við almenning ? Er fíkn þessa manns rétthærri en möguleg fórnarlömb hans?“