Ragnhildur helgadóttir látin

Ragnhildur Helgadóttir, lögfræðingur og fyrrverandi alþingismaður og ráðherra er látin á 86. aldursári. Hún lést síðastliðinn föstudag eftir stutta veru á Landspítalanum í Fossvogi.

Ragnhildur er kunnust af stjórnmálastörfum sínum, en hún sat á Alþingi í samtals 24 ár, fyrst 1956 og svo samfellt frá 1983 til 1991. Hún þótti fágaður stjórnmálamaður og fór ekki fram með háreisti í sinni pólitík, heldur var hún hófstillt og málefnaleg.

Ragnhildur var engu að síður mikil baráttukona á þingi í þeim málum sem voru henni hugleikin, ekki síst kvenrérrindamálin. Hún var önnur konan hér á landi til að gegna ráðherraembætti og fyrst kvenna til að gegna embætti menntamálaráðherra, 1983 til 1985, og embætti heilbrigðisráðherra, 1985 til 1987.

Ragnhildur var einnig fyrst kvenna forseti í deildum þingsins, sem þá voru tvær. Þá var hún fyrsta konan sem gegndi embætti forseta Norðurlandaráðs.