Harðar deilur sköpuðust í þingsal rétt í þessu þegar Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, gerði meinta hræsni stjórnarandstöðunnar að umræðuefni undir liðnum Um fundarstjórn. Ragnheiður sagðist ekki styðja aflandsfólk en eigi að síður vildi hún benda á vegna kröfu minnihlutans um umbætur að í fyrri stjórn hefði forsætisráðherra brotið jafnréttislög en samt ekki vikið. Fleiri dæmi mætti nefna. Ragnheiður gat sérstaklega þáttar þingmanns Pírata og ræddi tvískinnung þeirra eins og \"helgislepan sé engin í heiminum\".
Um andstöðu minnihlutans til að koma málum áfram á dagskrá hrópaði Ragnheiður svo eftir var tekið: \"Virðulegur forseti, þetta er fáránlegt!\"
Mikil læti urðu í kjölfarið og lá nærri að upp úr syði innan þingsins.
Birgitta Jónsdóttir, Pírötum, svaraði að engin sátt yrði um hefðbundin þingstörf fyrr en fram væri komin dagsetning um kjördag.
Uppfært: Stjórnarandstaðan hefur nú þegar þetta er skrifað kl. 14.45 tekið fyrstu 45 mínútur fundatímans á Alþingi undir liðinn Um fundarstjórn og mun að líkindum tefja framgöngu meðan ekki liggur a.m.k. fyrir hvenær verði kosið til Alþingis í haust.