Ragnheiður Ríkharðsdóttir, fyrrverandi alþingismaður, sakar popphljómsveitirnar Dúndurfréttir og Buff um meðvirkni með brottreknum söngara sínum, Pétri Þór Guðmundssyni.
Eins og Hringbraut greindi frá í gær hefur Pétur Þór verið rekinn úr hljómsveitunum, en hann hefur hingað til verið söngvari sveitanna beggja.
Hljómsveitirnar tilkynntu þetta á Facebook í gær. Án þess að gefa frekari skýringar.
Samkvæmt heimildum Hringbrautar er Pétur maðurinn sem Elísabet Ormslev ræðir í viðtali við Fréttablaðið í gær og gerði Ragnheiður þetta að umfjöllunarefni í gærkvöldi.
„Ung kona, Elísabet Ormslev, stígur fram í Fréttablaðinu í dag og segir frá nokkurra ára afar skrýtnu ástarsambandi sínu við a.m.k 20 ára eldri þekktan tónlistarmann, sambandi sem margir í bransanum þekktu til og foreldrar hennar reyndu sitt til að brjóta upp en gekk ekki eftir því miður,“ segir hún í færslu sinni áður en hún beinir spjótum sínum að hjlómsvetinum sjálfum:
„En um leið og alþjóð fær að vita þá allt í einu slíta þekktar hljómsveitir sambandi sínu við þennan tónlistarmann. hvar voruð þið meðan á þessu sambandi stóð, þvílík meðvirkni.“