Ragnneiður Elín Árnadóttir ferðamálaráðherra vandaði sumum þingmönnum ekki kveðjurnar í ræðu sem hún flutti á Ferðaþjónustudegi SAF í gær. Hún sakaði suma þingmenn um fáfræði og telur þá tjá sig um ferðamál án innistæðu.
\"Á sama tíma hef ég fundið fyrir nokkuð yfirgripsmiklu þekkingarleysi hjá ákveðnum kollegum mínum á Alþingi. Þar virðast menn oft tjá sig digurbarkalega án þess að hafa kynnt sér málin og sumir verða jafnvel sjálfskipaðir sérfræðingar að því er virðist eftir að hafa lesið ýmsar fyrirsagnir á netinu,\" sagði ráðherra í ræðu sinni.
Hún sagði að sem staki í því mengi að koma umræðu í \"betri farveg í þinginu\" hafi hún ákveðið að leggja fyrir Alþingi skýrslu um ferðamál þar sem farið verði yfir það helsta sem á daga landsins hefur drifið á undanförnum misserum og stöðu þessa mikilvæga málaflokks í dag. Skýrslunni verði bráðlega dreift og hún síðan rædd eftir páska. \"Þannig vona ég að þingmenn nái að kynna sér málin og taka upplýsta umræðu út frá staðreyndum sem fyrir liggja.\"
Hringbraut hefur rætt við stjórnarþingmenn sem telja að Ragnheiður Elín hafi \"dissað\" þingheim með ummælum sinum. \"Þetta fór illa í þingmenn,\" segir einn þingmanna Sjálfstæðisflokksins, en vill ekki láta nafns síns getið. Hann bætir við að Ragnheiður Elín beri höfuðábyrgð á málaflokknum sjálf. Ekki verði séð að hún hafi staðið sig vel í þeim efnum en skemmst er að minnast þess hvernig frumvarpið um náttúrupassana dagaði upp án stuðnings hennar eigin þingmannahóps í Sjálfstæðisflokknum.