Ragnheiður Elín Árnadóttir, iðnaðar- og viðskiptaráðherra hefur ákveðið að bjóða sig ekki fram að nýju í ljósi þess að hún hlaut slæma kosningu í kjördæminu sem hún hefur áður leitt. Ragnheiður sóttist eftir fyrsta sætinu
Hún skrifar m.a.: “Stjórnmálin hafa verið minn starfsvettvangur í tæpa tvo áratugi. Ég var aðstoðarmaður ráðherra í níu ár í þremur ráðuneytum, hef verið þingmaður í tæp tíu ár bæði í stjórn og stjórnarandstöðu, verið þingflokksformaður og ráðherra. Ég hef tekið þátt í að skrifa söguna og verið í forystu í stjórnmálum á gríðarlega miklum umbrotatímum í sögu þjóðarinnar.”
Hún bendir á að hún hafi verið fyrsta konan í 87 ára sögu Sjálfstæðisflokksins sem hafi leitt framboðslista í gegnum tvennar kosningar og engin kona hafi leitt kjördæmi lengur en ég. \"Ég er fyrsta konan úr landsbyggðarkjördæmi sem verður ráðherra fyrir Sjálfstæðisflokkinn og fyrsti ráðherra flokksins af Suðurnesjum. Þessu hef ég öllu barist fyrir og tekið alla þá slagi sem hefur þurft til\", skrifar hún og ennfremur að hún hafi tekið þátt í fjórum prófkjörum - fagnað sigri í þremur.
\"Með sama hætti og ég hef fagnað þeim skilaboðum sem í sigrunum hafa falist meðtek ég skilaboðin sem niðurstaða gærdagsins gefur til kynna\", skrifar hún.
Hún óskar Páli Magnússyni, nýjum oddvita velfarnarnaðar og segir að lokum: \"Ég læt þessu hér með lokið og kveð stjórnmálin að loknu þessu kjörtímabili.\"