Fer ekki fram fyrir sjálfstæðisflokkinn

Ragnheiður Ríkharðsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og þingflokksformaður mun ekki gefa kost á sér í prófkjör flokksins fyrir næstu kosningar, Vangaveltur eru uppi um að hún muni taka sæti á lista Viðreisnar. Meðal annars má sjá að formaður Viðreisnar, Benedikt Jóhannsson mærir Ragnheiði mikið og birtir þetta á facebook síðunni hennar: \"Ragnheiður Ríkharðsdóttir vinkona mín ætlar ekki að gefa kost á sér í prófkjöri Sjáflstæðismanna, sem eru auðvitað stórfréttir og mikill skaði fyrir flokkinn, því hún er einn allra flottasti þingmaðurinn.\" Ragnheiður var sú eina af Sjálfstæðismönnum sem samþykkti tillöguna um að leggja inn aðildarumsókn hjá Evrópusambandinu sem kom fyrir Alþingi þann sumarið 2009.

Ragnheiður mætir á Hringbraut í kvöld klukkan 21:45

Ragnheiður hefur verið þingmaður Suðvesturkjördæmis síðan 2007 fyrir Sjálfstæðisflokkinn og formaður þingflokksins síðan 2013. Hún var bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ 2002–2007 og bæjarstjóri. Ragnheiður er fædd árið 1949.