„Ég skrifaði færslu til stuðnings þeim þingmönnum sem hafa lagt mikið á sig til að koma í veg fyrir að þriðji orkupakkinn verði samþykktur. Ég hef verið úthrópaður kvenhatari, krafinn um afsögn úr embætti formanns VR og þaðan af verra fyrir vikið. Einnig er fullyrt að ég sé genginn í Miðflokkinn.“
Þannig hefst pistill eftir Ragnar Þór Ingólfsson formann VR. Þar spyr Ragnar af hverju stuðningur hans hafi vakið svona hörð viðbrögð. Ragnar Þór segir:
„Allt vegna þess að ég er á móti þeirri vegferð sem felst í því að markaðssvæða grunnstoðir samfélagsins. Af hverju er ég á móti því og hvaða reynslu höfum við á viðlíka pökkum í nafni frjálsrar samkeppni og markaðsvæðingar, neytendum til góða? Nærtækasta dæmið er einkavæðing bankanna sem átti að lækka kostnað, auka samkeppni og síðast en ekki síst vera samfélaginu og neytendum til góðs.“
Ragnar segir að annað hafi komið á daginn. Hann tekur fram að þó að hann sé á móti þriðja orkupakkanum þýði það ekki að hann sé andstæðingur Evrópusambandsins. Þá segir hann að gott fólk og málefni sé að finna í öllum flokkum. „Mér er nákvæmlega sama hvaðan gott kemur,“ segir Ragnar á einum stað.
„Það er vandlifað í heimi málfrelsis og frjálsra skoðanaskipta svo lengi sem skoðanir þínar eru „réttar“. Ég tel að pólitísk rétttrúnaðarstefna, og pólitískur rétttrúnaður almennt, sé það sem sundrar samfélögum. Alveg eins og hver önnur trúarbrögð,“ segir Ragnar og kveðst ekki kippa sér upp við það hvað „pólitískir rétttrúnaðarsinnar setja hann eða aðra í pólitíska bása eftir því hvaða skoðanir hann setur fram, líkt og Ragnar orðar það sjálfur.
„Mínar persónulegu skoðanir endurspegla ekki endilega afstöðu verkalýðshreyfingarinnar og svo sannarlega ekki þeirra sem standa mér næst. Þetta er bara það sem mér finnst.
Þess vegna sætti ég mig við að vera pólitískt viðundur því ég er fyrst og fremst réttlætissinni og að eðlisfari nokkuð fordómalaus,“ segir Ragnar og endar pistilinn sinn á þessum orðum:
„Já og framferði títtnefndra þingmanna á Klausturbar voru þeim sjálfum og þjóð til háborinnar skammar.“