Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, hvetur Icelandair til að gera viðeigandi ráðstafanir eftir að hafa flogið með flugfélaginu á dögunum. Ragnar Þór skrifar um þetta á Facebook og er tilefnið Covid-19 kórónuveiran sem hefur verið áberandi í þjóðfélagsumræðunni síðustu daga.
„Í flugvélum Icelandair er að finna matseðla og Saga bæklinginn ofl. Sem er vandlega komið fyrir í plasti. Þessu lesefni, sem ætlað er farþegum til að panta sér mat og drykk eða versla, er auðsjáanlega hvorki endurnýjað eða þrifið nema að litlu leyti,“ segir Ragnar.
Hann kveðst hafa komið til landsins með vél Icelandair frá Munchen á mánudag en tekur fram að hann hafi ekki verið að koma frá hættusvæði vegna veirunnar.
„En einhverjir smitaðir hafa komið með þessum vélum dagana áður, og get ég fullyrt að þegar ég tók upp áðurnefnda bæklinga varð mér ekki um sel. Þeir voru drulluskítugir, krumpaðir og kámugir og plöstin litlu skárri og litu út eins og að hafa verið á biðstofu á annasömum stað í c.a. áratug eða meira. Ég hvet Icelandair til að gera viðeigandi ráðstafanir. Svo því sé haldið til haga þá sprittaði ég mig í bak og fyrir eftir að hafa snert á þessum ófögnuði,“ segir Ragnar Þór.
Hann bætir svo við að farþegar í flugi séu sérstaklega hvattir til að taka upp bæklinginn til að panta sér mat og drykk eða til að kaupa varning.