Tvö framboð bárust til formanns VR og ellefu til stjórnar fyrir kjörtímabilið 2017 – 2019 en framboðsfrestur rann út á hádegi í gær, fimmtudaginn 9. febrúar. Kjarninn sagði frá þessu í gærkvöldi.
Frambjóðendurnir tveir til formanns eru Ólafía B. Rafnsdóttir, núverandi formaður, og Ragnar Þór Ingólfsson sem situr í stjórn VR og sat í fyrsta sæti framboðslista Dögunar fyrir síðustu Alþingiskosningar. Hann starfar sem sölustjóri hjá Erninum og hefur um langa hríð birt pistla vegna lífeyrisréttinda og afnáms verðtryggingar.
Fyrirhugað er að kosningar hefjist þann 7. mars næstkomandi en kjörstjórn mun auglýsa tilhögun þeirra nánar þegar nær dregur.
Fyrirhugað er að kosningar hefjist þann 7. mars næstkomandi en kjörstjórn mun auglýsa tilhögun þeirra nánar þegar nær dregur.