Ragnar Þór Ingólfsson gefur lítið fyrir það sem hann kallar harmakórinn óvinsæla í pistli sínum sem hann birti í Fréttablaðinu í gær. Hann segir að þennan kór skipi peningastefnunefnd Seðlabankans, forstjórar stórfyrirtækja, fjármagnseigendur og margt þekktasta stjórnmála og embættisfólk landsins.
Ragnar Þór fer mikinn í pistli sínum og gagnrýnir þar meðal annars vaxtahækkanir Seðlabankans
„Án þess að hafa hugmynd um kröfugerðir á almennum vinnumarkaði lýsa flestir talsmenn sérhagsmuna (lesist embættismenn og ríkisstjórnin) yfir þungum áhyggjum af stöðunni og kalla eftir hófsemi og ábyrgð. Seðlabankinn keyrir upp stýrivexti til þess að sýna vígtennurnar ef almúganum skyldi detta í hug að biðja um það sama og aðrir hafa fengið. Vextir munu hækka og hækka ef þið hagið ykkur ekki vel, segir seðlabankastjóri á meðan smellur í svipunni,“ skrifar Ragnar Þór í pistli sínum.
Þá segir hann þetta allt saman vera í samhengi við komandi viðræður um kjarasamninga en ljóst er yfir 300 kjarasamningar renna sitt skeið núna í haust.
„Harmakórinn undirbýr stórtónleika en háannatími, eins konar jólavertíð, hans er þegar kjarasamningar á almennum vinnumarkaði eru lausir. Heyrast munu lög eins og: Græðgi ykkar er skaðleg hagkerfinu, Hófsemi og ábyrgð, Ábyrgðin er ykkar og hinir klassísku slagarar, Höfrungahlaup og Víxlverkun launa,“ segir Ragnar en ljóst er að hart verður tekist á um kjör launafólks eftir að sumrinu lýkur.