Ragnar snær missti röddina og hélt aftur tárunum - ofbauð slúðrið og ásakanirnar

Það muna líklega flestir Íslendingar eftir hetjulegri baráttu Fanneyjar Eiríksdóttur við leghálskrabbamein sem hún tapaði að lokum síðastliðið sumar.

Sjá einnig: Fanney er látin: „Barðist fram á síðustu stundu og gafst aldrei upp“

Fanney og eiginmaður hennar Ragnar Snær Njálsson leyfðu Íslendingum að fylgjast með veikindunum í beinni á Instagramsíðu Ragnars. Var parið opinskátt, einlægt og sýndi allar hliðar veikindanna með jákvæðu hugarfari og baráttuviljann að vopni.

Í nýjasta þætti Einkalífsins á Vísi sest Ragnar niður og ræðir á einlægan hátt um síðastliðið ár og hvernig það var að vera maki í þessari stöðu. Í þættinum má heyra hvernig Ragnar missir röddina og heldur aftur af tárunum þegar hann minnist Fanneyjar og ræðir um fortíðina.

Slúðursögurnar tóku á

Ragnar og Fanney áttu tvö börn saman, þau Emilý Rós og Erik Fjalar en Fanney greindist með krabbameinið þegar hún var ólétt af syni þeirra.

Þá ræðir Ragnar einnig um slúðursögurnar sem gengu manna á milli undir lok veikinda Fanneyjar en voru þau meðal annars sökuð um að eyða peningum sem almenningur hafði safnað fyrir þau í aðra hluti en um var rætt í upphafi.

Segir Ragnar þann tíma hafa verið verstan í gegnum baráttu hjónanna og að þau hafi tekið ákvörðun um að skrifa niður hver það væri sem væri að dreifa slúðrinu. Í dag á Ragnar 160 blaðsíðna bók sem inniheldur nöfn og umræður og veltir hann því fyrir sér hvort hann eigi að gefa efnið út.

„Þetta hafði afskaplega slæm áhrif á okkur á langerfiðasta tímanum í ferlinu. Ég ætla sannarlega að vona það að viðkomandi aðilar geti núna litið í spegil, horft á sjálfan sig og hugsað að frá og með deginum í dag ætla ég að gera betur. Þetta er svo sannarlega ekki framkoma sem ég myndi óska mínum versta óvini. Á ákveðnum tímapunkti í ferlinu var mér og Fanneyju algjörlega ofboðið,“ segir Ragnar meðal annars.

Hægt er að horfa á þáttinn í heild sinni í spilara Vísis hér fyrir neðan: