Framtíðarnefnd VR á að fjalla um og móta stefnu VR varðandi fjórðu iðnbyltinguna svokölluðu. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segist binda miklar vonir við starf nefndarinnar og að VR ætli að vera leiðandi í umræðunni um fjórðu iðnbyltinguna. Vinna framtíðarnefndarinnar muni skila sér inn í kröfugerðir VR en auk þess vonast hann eftir breiðu samstarfi verkalýðshreyfingarinnar, atvinnurekenda og hins opinbera í tengslum við þetta stóra verkefni sem fjórða iðnbyltingin er.
Þetta kemur fram í Fréttablaðinu í dag. Þar er haft eftir Ragnari að umræða um sjálfvirknivæðingu hafi staðið yfir innan VR í nokkurn tíma. Hann hafi sjálfur skoðað hátæknivöruhús í Finnlandi þar sem störfum fækkaði úr 1.500 í 750 með tilkomu róbóta. Störfin hafi breyst við þetta og ný hálaunastörf orðið til.
„Okkar ætlun er að vera í forystuhlutverki. Til þess að geta haft áhrif þurfum við að taka þátt í þessari þróun í stað þess að ala á ótta við breytingar sem við höfum ekki stjórn á.“
Er haft eftir Ragnari sem segir þetta stærsta málið sem verkalýðshreyfingin muni standa frammi fyrir og á næstu árum muni baráttan taka mið af því.
„Við munum taka vinnu þessarar nefndar og koma henni á framfæri innan Alþýðusambandsins og opinbera geirans. Við þurfum líka að fá sem flesta að þessu því þetta snertir svo margar starfsgreinar. Verkalýðshreyfingin má ekki sitja eftir sem áhorfandi.“
Samkvæmt svörtustu spám mun atvinnuleysi aukast mikið með fjórðu iðnbyltingunni og það hefur í för með sér aukið álag á grunnþjónustuna. Því segir Ragnar mikilvægt að hið opinbera komi að málum.
„Ef atvinnuleysið verður svona mikið þá verður að fara að taka umræðuna um borgaralaun og hvernig við bregðumst við. Hugsanlega með því að skattleggja tækni.“
Ein af áskorununum í þessu sambandi er að endurmennta fjölda fólks og segir Ragnar að VR sé nú þegar byrjað á þeirri vinnu.
„Síðasta vor komum við á fót fagháskólanámi í verslunarstjórnun og verslun með breytingar á til dæmis dagvörumarkaði í huga. Það er samstarfsverkefni VR, Samtaka verslunar og þjónustu og menntamálaráðuneytisins. Rafiðnaðarmenn hafa einnig komið skóla á fót. Það er samt ljóst að það er mikið verk óunnið.“
Rafiðnaðarmenn hafa einnig komið skóla á fót. Það er samt ljóst að það er mikið verk óunnið.“