Ragnar Önundarson spyr sig í pistli sem birtist á vefsíðunni Miðjan.is hvort að hagsmunatengsl ráðamanna hafi komið í veg fyrir að hægt yrði að elta uppi það sem hann kallar „illa fengið fé,“ sem aðilar tengdir fjármálakerfinu fyrir hrun hafi komið undan.
„Peningatilfærslur skilja eftir sig rafræna slóða sem má rekja. Hver ákvað að gera það ekki? Reiði er viðvarandi í garð ráðamanna, fólk spyr sig hvort stjórnmálamenn séu starfi sínu vaxnir? Eða eru það hagsmunir sem ráða för, rétt einu sinni?“
Ragnar segir að vegna þess að flestir þeir sem hafi komið að hruninu hafi einungis verið ákærðir fyrir umboðssvik og því sé ekki hægt að hafa upp á því fé sem hann segir að þeir hafi komið undan og geti því snúið aftur núna:
„Nú streyma þessir peningar til baka og sjálftökumennirnir skreyta sig með sæmdarheitinu „fjárfestir“ og berast á. Getur verið að hagsmunatengdir ráðamenn framkvæmdavalds hafi lagt lamandi hönd sína á málið?“