Ragnar Freyr: „Hvenær hættir sjúkdómur að vera hættulegur?“

Hvenær hættir sjúkdómur að vera hættulegur, spyr Ragnar Freyr Ingvarsson, fyrrverandi yfirlæknir Covid-göngudeildarinnar og Læknirinn í eldhúsinu á Facebook-síðu sinni.

Ragnar Freyr spyr jafnframt hvort sraumhvörf séu í Covid-19 faraldrinum á Íslandi.

Ragnar Freyr bendir á að Ísland hafi tekist á við Omíkron-afbrigðið í tæpa tvo mánuði núna.

Tugþúsundir hafi smitast og um hrundrað hafi lagst inn, rúmlega helmingur þó vegna annarra veikinda og hinn vegna Covid-19.

Einkenni sjúklinga hafi alla jafna verið væg og þá segir Ragnar Freyr að enginn hafi lagst inn á gjörgæslu.

„Eins og ég hef áður nefnt - Covid-19 hefur gjörbreyst á liðnum vikum!

Maður hlýtur þá að spyrja sig hvenær hægt er að hætta að tala um eitthvað sem ógn við almannaheill?“ spyr Ragnar Freyr á Facebook-síðu sinni.