Ragnar Freyr Ingvarsson, fyrrverandi yfirlæknir Covid-göngudeildarinnar og Læknirinn í eldhúsinu, spyr hvort það sé vit í því að framkvæma öll þau PCR-próf sem framkvæmd eru í dag.
Ragnar Freyr skrifaði færslu á Facebook-síðu sína um málið þar sem hann segir óhætt að fullyrða að Covid-19 hafi breyst og vísar hann til komu Omíkron-afbrigðisins og segir það vægara afbrigði sem smitast eins og enginn sé morgundagurinn.
Að sögn Ragnars Freys leggst lítið hlutfall smitraðra inn á spítala og fáir lendi á gjörgæslu. Hann spyr hvernig framhaldið verður.
„Er vit í því að framkvæma öll þessi PCR próf? Á að mestu leyti frísku fólki sem hefur litla áhættu á því að veikjast alvarlega, leggjast inn á sjúkrahús eða lenda á gjörgæslu?“ spyr Ragnar Freyr og bendir á að PCR-próf séu ekki ókeypis, þvert á móti. Kostnaðurinn sé sennilega á bilinu 50 til 100 milljónir króna.
„Væri meiri vit að beina þessu fjármagni inn á spítalann - byggja hann upp til að takast á við þessi veikindi. Prófa bara þá sem eru í áhættuhópum? Vakta þá sem eru í áhættu sérstaklega?“ segir Ragnar Freyr jafnframt og spyr hvort ekki þurfi að endurhugsa nálgunina og horfa lengra fram á veginn.