Ragnar reiður: „skítt með þetta allt saman!“

Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, fer hörðum orðum um sölu Heimavalla á íbúðum á Akranesi, í nýrri Facebook færslu. Þar sakar hann félagið um að gera hvað sem er fyrir skjótfenginn gróða.

Eins og Hringbraut hefur greint frá er Ragnar ekki fyrsti verkalýðsleiðtoginn til að gagnrýna Heimavelli. Vilhjálmur Birgisson, formaður Verkalýðsfélags Akraness, sagði sölu leigufélagsins á íbíðunum á Holtsflöt og Eyrarflöt siðlaus.

Sjá einnig: Vilhjálmur: „26 fjölskyldur eru í fullkominni angist“

„Heimavellir seldu 18 íbúðir að Holtsflöt 4 á 582 milljónir en fasteignamatið fyrir árið 2020 er rétt tæpar 860 milljónir. Heimavellir seldu einnig 8 íbúðir á Eyrarflöt 2 til sömu aðila á 190 milljónir en fasteignamat fyrir árið 2020 nemur 260 milljónum,“ skrifar Ragnar.

„Eftir samtöl við nokkra fasteignasala, afrit af kaupsamningum og verðlagningu íbúða á Akranesi, á fasteignir.is, er ljóst að vonin um skjótfenginn gróða var ekki gripin úr lausu lofti og mætti ætla að kaupendur íbúðanna geri ráð fyrir því að slíta út allt að 350 milljónir á þessum snúningi, jafnvel meira.“

Ragnar spyr hvað eigendur Heimavalla segi við þessu. Hann bendir á að tvö félög, BJB ehf og Benson ehf. séu skráð fyrir kaupunum. Bæði félögin séu skráð á Björn Jakob Björnsson, lögmann. „En til þess að Björn Jakob Björnsson og hans félög geti slitið út allt að 350 milljónir á þessum „snúningi“ þarf að gera nokkuð sem vekur upp siðferðislegar spurningar,“ skrifar Ragnar og heldur áfram:

„Díllinn gengur semsagt út á það að henda út öllum leigjendum eins fljótt og mögulegt er, setja íbúðirnar í sölu á almennum markaði og fá sem mest fyrir þær á sem skemstum tíma.

Í þessum íbúðum búa 26 fjölskyldur og mætti ætla að þetta mál hafi bein áhrif á allt að 100 einstaklinga.

Skítt með fólkið!

Skítt með barnafjölskyldurnar og einstæðu mæðurnar á Holtsflöt 4 eða Eyrarflöt 2, sem munu enda á götunni!

Skítt með það þó þau þurfi að flytja í annað bæjarfélag!

Skítt með það þó krakkarnir og foreldrarnir þurfi að rífa sig upp með rótum frá vinum og samfélagi!

Skítt með þetta allt saman!

Því það eina sem skiptir máli er að Björn Jakob Björnsson og félögin BJB ehf. og Benson ehf. geti tekið snúninginn sinn og grætt peninga.“