Ragnar boðar enn meiri breytingar

Ragn­ar Þór Ing­ólfs­son, formaður VR, seg­ir í úttekt Morgunblaðsins í dag um hræringarnar í verkalýðshreyfingunni að for­manns­kjörið í Efl­ingu sé enn eitt ákallið um breyt­ing­ar.

„Það er mik­il undir­alda. Hún hef­ur verið að byggj­ast upp. Þegar ég náði kjöri sem formaður VR fyr­ir ári kom mér á óvart hversu af­ger­andi niðurstaðan var. Mér varð þá ljóst að krafa var um ákveðnar breyt­ing­ar inn­an hreyf­ing­ar­inn­ar. Mitt fram­boð var mjög af­drátt­ar­laust. Það var van­trausts­yf­ir­lýs­ing á ákveðna þætti og ákveðna aðila inn­an hreyf­ing­ar­inn­ar,“ seg­ir Ragn­ar Þór vip blaðið og nefn­ir dæmi um fleiri for­manns­kjör.

„Síðan má segja að gras­rót­in hafi stigið fram inn­an Kenn­ara­sam­bands Íslands (KHÍ). Það gerðist fyrst með kjöri Ragn­ars Þórs Pét­urs­son­ar sem for­manns KHÍ. Þá fór grasrót­armaður gegn ríkj­andi öfl­um. Síðan gerðist það sama hjá Fé­lagi grunn­skóla­kenn­ara þegar Þor­gerður Lauf­ey Diðriks­dótt­ir er kjör­in formaður. Bæði vinna yf­ir­burðasig­ur. Nú síðast stíg­ur Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir fram í Efl­ingu með ekki ósvipuðum hætti og við gerðum í hall­ar­bylt­ing­unni árið 2009 í VR. Það var lista­kosn­ing hjá Efl­ingu og niðurstaðan er ótrú­leg,“ seg­ir Ragn­ar Þór í um­fjöll­un um mál þetta í Morg­un­blaðinu í dag.