Ragnar axelsson opnar sýninguna jökull

Ragnar Axelsson, betur þekktur sem Rax er einn af þekktustu ljósmyndurum Íslands enda á hann að baki ansi glæstan feril. Ragnar hefur ferðast um allan heim til að myndað ótrúlegustu hluti allt frá snjóstormum á Grænlandi yfir í réttir á suðurlandi. 

Ragnar hefur undanfarin ár safnað að sér myndum af jöklum en setti, ásamt Einari Geir, saman sýningnuna og bókina Jökull þar sem sjá má hringrás jökulsinns í sinni sterkustu mynd, frá toppi til sjávar. Ásmundarsalur var fullkomið val á sal fyrir sýninguna og er sjón sögu ríkari. 

\"\"

Bókin Jökull sem fer mun ítarlegar í ferlið á Jöklinum er vægast sagt glæsileg og ótrúlegt hvað myndirnar hans Ragnars geta hreyft við manni. 

Nánar um sýninguna og bókina Jökull í þættinum 21 í kvöld, 17. október.