Ragna horfði á bekkjarmyndina á veggnum: „vildi hún það ekki eða gat hún það ekki?“

Ragna Árnadóttir er gestur Sigmundar Ernis í þættinum Mannamál sem sýndur er hér á Hringbraut í kvöld. Ragna var ráðinn skrifstofustjóri Alþingis í sumar og tók við starfinu af Helga Bernódussyni. Ragna er fyrst kvenna til að gegna starfinu. Ragna er ekki alveg ókunn stjórnmálum en hún var dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna á árunum 2009 til 2010 og kom inn í ríkisstjórnina utan flokka. Þá var Ragna einnig aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.

Í viðtalinu rifjar hún upp örlög ömmu sinnar:

Sigmundur Ernir: Þú nærð líka í gamla tímann, þennan að mörgu leyti heillandi tíma en líka brotna og erfiða tíma þegar til dæmis þegar systkini úr stórum hópi urðu að sjá eftir einu til náms. Kannski einn úr hópnum fékk að fara í nám, eins og til dæmis amma þín.

„Eins og amma mín Ragna sem var kostuð til náms á Akureyri,“ svaraði Ragna og hélt áfram: „Hún var þá eina stelpan í bekknum. Ég get ekki annað enn hugsað til þess, en hún kynnist þar afa mínum Ragnari. Hann var einkabarn. Þau hittast á Menntaskólanum á Akureyri.

Ég horfi á þessa mynd, þessa bekkjarmynd þar sem hún er eina stelpan í bekknum. Þarna eru menn sem síðar urðu þjóðþekktir. Amma mín, hvað var það sem hindraði hana í að fara sömu leið og margir hennar bekkjarbræður. Vildi hún það ekki eða gat hún það ekki?“

Þá sagði Ragna einnig:

„Þetta finnst mér merkilegt að hugsa um. Hún er kostuð til náms. Hún er valin og stendur sig með glæsibrag. Stóð sig frábærlega í latínu og var dáð af bekkjarbræðrum sínum. Ég spyr mig, hefði hún viljað gera meira? Hún endaði sinn starfsferil sem kennari í Ármúlskóla og frábær kennari. En samt sem áður, þarna var eitthvað þak.“