Ragna árnadóttir: „það er hræðilegt bara. hræðilegt [...] „algjör hryllingur“

Ragna Árnadóttir er gestur Sigmundar Ernis í þættinum Mannamál sem sýndur er hér á Hringbraut í kvöld. Ragna var ráðinn skrifstofustjóri Alþingis í sumar og tók við starfinu af Helga Bernódussyni. Ragna er fyrst kvenna til að gegna starfinu. Ragna er ekki alveg ókunn stjórnmálum en hún var dómsmálaráðherra í ríkisstjórn Samfylkingarinnar og Vinstri grænna á árunum 2009 til 2010 og kom inn í ríkisstjórnina utan flokka. Þá var Ragna einnig aðstoðarforstjóri Landsvirkjunar.

Í viðtalinu við Sigmund lýsti Ragna upplifun sinni á því þegar hópur fólks mótmælti fyrir utan heimili hennar árið 2009. Tengdust mótmælin málum hælisleitenda.  

„Það voru hræðilega erfið mál, alveg rosalega erfið mál, vegna þess að kerfi er kerfi en svo eru einstaklingar einstaklingar. Það er alltaf mjög mikil áskorun að búa til kerfi í kringum einstaklinga.“

Sigmundur Ernir: Hvernig tilfinning er það að finna að heimili manns er ekki lengur griðastaður?

„Það er hræðilegt bara. Hræðilegt. Þetta voru erfið mál. Þetta voru að vísu ekki stór hópur en hávær hópur sem kom að heimili mínu í einhver skipti og mótmælti. Af því að þessu mál snertu mig svo djúpt sem einstakling þá var þetta líka hræðilega erfitt, að hafa þessi mótmæli fyrir utan,“ sagði Ragna og bætti við:

„Eitt er að hafa mótmæli fyrir utan ráðuneyti, það er mjög erfitt en að hafa þau fyrir utan heimili sitt er algjör hryllingur. Ég var að hugsa um dætur mínar, .hafði nú engar áhyggjur af eiginmanninum. Það var svo skrítið að eldri dóttir mín var þá 16 ára og yngri 9 ára.  Brynhildur þessi eldri sagði:

„Mamma, ekki hafa áhyggjur, þetta er ekkert mál. Við tökumst á við þetta.“

Þá sagði Ragna einnig: „Þegar við verðum nú gömul og börnin okkar fara að hugsa um okkur. Börnin okkar fara að hugsa um okkur miklu fyrr en við höldum og á svona stundum, þá hugsaði hún um mig. Það var merkilegt.

En þetta fer virkilega inn á mann. Friðhelgi heimilis hún er ofboðslega mikilvæg. Ef þú rýfur hana, þá ertu búinn að koma við eitthvað, það er einhver kjarni þarna, sem er þá búið að kroppa í. Það er vont. Við viljum að stjórnmálamenn hlusti og við viljum að stjórnmálamenn taki mótmæli og allar skoðanir og hugsi sitt mál. Var þetta rétt? Gætum við gert þetta betur? Þetta er í raun og veru bara til að hræða. Ég hugsaði mikið um það, er ekki hræddur stjórnmálamaður, svolítið vondur stjórnmálamaður?“

Mannamál eru á dagskrá kl: 20:00 í kvöld á Sjónvarpsstöðinni Hringbraut