Ragnhildur Gísladóttir er í einlægu forsíðuviðtali í nýjasta hefti MAN þar sem hún ræðir nýjasta verk sitt Túnfíflasinfóníuna, viðskilnaðinn við Stuðmenn og sambýlismann sinn Birki Kristinsson.
Birkir afplánar nú fjögurra ára fangelsisdóm fyrir brot í starfi sínu sem viðskiptastjóri Glitnis, en Ragga segist í viðtalinu dá hann algerlega og elska skilyrðislaust hvert sekúndubrot alla daga.
Ragnhildur verður sextug á árinu, en hún segist endurnýja sig með því að fasta í allt að 3 vikur í senn. Hún á fjögur barnabörn á aldrinum 3ja til 7 ára en segist ekki týpísk amma og ekki alltaf boðin og búin þegar kemur að pössun enda mikið um að vera.