Raftæki: nýtt kaupæði er hafið

Innflutningur á sjónvarpstækjum er tvöfalt meiri á fyrstu sex mánuðum ársins í samanburði við fyrstu sex mánuði ársins 2014. Innflutningur á hljóðvarpstækjum hefur aukist um 46 prósent, á kæli- og frystitækjum um 73 prósent og á fólksbílum um 34 prósent.

Þetta kemur nfram í Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka sem rekur þessa þenslu til aukins kaupmáttar, fjölgunar ferðamanna, sterkara raungengi og lækkunar vörugjalda á raftækjum: \"Aukin umsvif eru í hagkerfinu um þessar mundir, nær sama hvert litið er. Utanríkisverslun er þar engin undantekning en á fyrri helmingi ársins hefur innflutningur aukist um 23% milli ára á föstu gengi og útflutningur aukist um 25%,“ segir í Markaðspunktunum. 

Stærstur hluti aukningarinnar á innflutningi er vegna hrávara og rekstrarvara. Innflutningur á þessu vöruflokkum jókst um 25 milljarða í samanburði við fyrri helming árs 2014. Þar af eru 13 milljarðar tilkomnir vegna aukins innflutnings á súráli, sem ál er unnið úr. \"Aukning á innflutningi súráls hefur verið meiri en aukning útflutnings á áli í tonnum talið, eða 17% og t.d. var innflutningur á súráli í júní nærri því tvöfalt meiri en í júní í fyrra annars vegar og í maí síðastliðnum hins vegar. Þá hefur innflutningur á fjárfestingavörum einnig aukist. Uppgangur í íbúðafjárfestingu sést þegar rýnt er nánar í tölurnar, en t.a.m. var flutt inn tvöfalt meira af þakjárnum og 25% meira af rúðuglerum á fyrri helmingi ársins samanborið við fyrri helming ársins 2014,“ segir enn fremur í Markaðspunktum greiningardeildar Arion banka.