Mikið hafa nú borgarstjórnar kosningarnar verið ræddar. Hver hefur sína skoðun á flokkunum og hver og einn hefur auðvitað réttast fyrir sér.
Eitt sem ég rak augun í og það voru hlutföll. Ég er ánægð með kynjahlutfall borgarstjórnar, eða nánast allveg jafnt. Stjórnin er tiltölulega ung og held ég að það muni gera öllum gott að fá unga fólkið sem hefur þurft að klóra í bakkann við stjórn. Vonandi látum við þá sitja á hakanum að breyta vesturbænum í regnboga götubæ og rándýrir „sælureitir“ heyri kannski sögunni til því við eigum töluvert stærri vanda en skort á sælureitum.
Já, varðandi prósentur og hlutföll. Hlutfall kjörsóknar fannst manni nú ansi lágt eða 67,6% á öllu landinu. Hlutfallið var lægst í Hafnarfirði eða 57% og hæst á Seltjarnesi eða um 75,2%. Voru allir Hafnfirðingar á Tene?
Ég velti því fyrir mér hver ástæðan fyrir þessu sé?
Er ástæðan mögulega fyrirhöfnin? Að koma sér útí bíl, finna næsta grunnskóla eða íþróttahús og labba alla leið frá bílastæðinu inn á kjörstað þar sem er engin röð og skrifa með penna eitt X?
Var fólk ekki meðvitað um að kosningadagur væri á laugardaginn? (Vissulega var kjörstaður í Smáralind fyrir þá sem þurftu að kjósa utan kjörsvæðis en vandinn þar var víst að fólk átti í einhverum erfiðleikum með að finna staðsetninguna, leiðinda mál).
Hefur fólk ekki kynnt sér flokkana nægilega mikið til að taka afstöðu?
Er unga fólkið að kjósa?
Eða er stóra spurningin sú að við þurfum einfaldlega að rafvæða kosningarkerfið?
Að Íslendingar erlendis geti nýtt sér kosningarétt sinn, að þeir sem eiga erfitt með að komast á milli staða geti nýtt sér kosningarétt sinn.
Að allir geti nýtt sér sinn rétt til þess að hafa atkvæði hverjir stjórna landinu okkar!
Þá er ég alls ekki að tala um að hætta með kjörstaðina, heldur hafa úrræði fyrir þá sem geta ekki nýtt sér kjörstaði.
Þetta eru nú bara saklausar pælingar, ef til vill hefði mátt spá í þessu fyrir kosningar.
** Snædís **