Rafmagnsvögnum fjölgar

Fimm nýjum rafmagnsvagnar bætast í flota Strætó bs. Búist er við að vagnarnir verði teknir í notkun í þessum mánuði samkvæmt frétt Morgunblaðsins í dag.

Þar kemur fram að Strætó ætlar að bæta við fimm öðrum sambærilegum rafmagnsvögnum í lok október. Alls verða rafmagnsvagnarnir þá 14 talsins sem verður þá um tíu prósent af öllum flotanum á höfuðborgarsvæðinu.

Með tilkomu vagnanna mun eldsneytiskostnaður lækka töluvert.