Rafmagnslaust víða um land

Rafmagnslaust er nú víða á landinu sakir ofsaveðursins sem skekur landið, þar á meðal á Akureyri og Siglufirði, en rafmagn fór einnig af öllu Austurlandi laust fyrir klukkan hálfellefu en komst svo á aftur um hríð.
 
Rafmagnslaust er á norðaverðum Vestfjörðum og enn er rafmagnslaust á Vík, þar sem rafmagnsstaur brotnaði og hefur verið frá 18.30. Þá fór rafmagn af fleiri svæðum sunnanlands sem og Hvalfjarðarsveit og Svínadal og fleiri stöðum.
 

Að því er fram kom á fréttavef RÚV rétt áðan var rafmagn að komast á Austfirði hvern af öðrum, og einnig er komið rafmagn á Egilsstaði. Rafmagn fór af Stuðlalínu 1 milli Hryggstekks á Héraði og Stuðla í Reyðarfirði annars vegar, og Eyvindarárlínu 1, milli Hryggstekks og Eyvindarár á Egilsstöðum hins vegar. Enn er verið að leita orsakar, en maður hefur verið sendur á vettvang til að kanna aðstæður í tengivirkinu á Hryggstekk á Héraði.

Á Austurlandi hafði annars allt gengið nokkurnveginn slysalaust fram að því. Nokkrar truflanir og útleysingar urðu eystra og Hafnarlína milli Hóla og Hafnar í Hornafirði datt út um stund en er komin í samband á ný. Sömu sögu er að segja af Vestur-Skaftafellssýslu, þar sem rafmagnslaust var skamma stund. Helst höfðu menn áhyggjur af byggðalínunni á suðausturhorninu, og línum milli fjarða fyrir austan, en allt hefur þetta sloppið til fram til þessa og í raun orðið mun minni truflanir en óttast var.

Þá er rafmagnslaust á norðanverðum Vestfjörðum, eftir að útleysing varð á flutningslínu milli Breiðadals og Ísafjarðar rúmlega hálf ellefu.

Uppfært: Rafmagn er nú komið á víðast hvar um landið.