Biksvört bæjarstjórn fyrir norðan!

Enn er ekki komið rafmagn á hluta Akureyrar. Starfsmenn bæjarstjórnarskrifstofunnar vinna í myrkrinu samkvæmt færslu á facebook frá einum starfsmanna bæjarins.

Á vefnum akureyri.net hefur verið tekið saman hvaða hverfi á Akureyri eru enn rafmagnslaus. Þau eru: hluti af Brekkugötu (1-31), Túngata, Geislagata, Laxagata, Hólabraut, hluti af Eiðsvallagötu, Fjólugata, Norðurgata nr. 31 og 35, Strandgata nr. 9, 11 og 13, Gránufélagsgata 10 og 19, Fróðasund og Glerárgata 1 til og með 7. 

Verið er að gera mælingar á búnaði spennistöðvarinnar.

Sjá frétt akureyri.net hér.