Annar þáttur Súrefnis – nýs þáttar um umhverfisvernd er á dagskrá í kvöld.
Birgir Jóakimsson er fremstur manna við að endurvinna, bæði innan og utanhúss – Pétur Einars heimsækir Birgi í vesturhluta Reykjavíkur. Linda talar við Hafrúnu Þorvaldsdóttur frá Orku Náttúrunnar (ON) um orkuskiptin – hve einfalt það er í dag – og ódýrt – að skipta út bensín eða díselbílnum fyrir rafmagnsbíl. Hafrún þekkir málefnið út og inn sér meðal annars um vöruþróun hjá ON sem er dótturfélag Orkuveitu Reykjavíkur. Hún greinir á einfaldan hátt hvernig við getum auðveldlega breytt um lífsstíl og sparað tugi þúsunda.
Birgitta er ung kona sem hætti fyrir löngu að kaupa sér ný föt! Við fengum að skoðum fataskápinn hennar Birgittu og ræðum þar með við enn einn framsýnan borgarann í samfélaginu sem pælir í umhverfinu og samfélagsábyrgð.
Við beinum sjónum okkur að loftinu, hafinu og vernd alls þess sem byggir jörðina með okkur með okkur mönnunum.
Súrefni er á dagskrá öll mánudagskvöld Kl. 20.30 til 21. Þá ræða Linda Blöndal og Pétur Einarsson bæði við fróða jafnt sem almenna borgara um umhverfisvernd og fara víða til þess.