Rafmagnað andrúmsloft í bílageiranum

Segja má að það sé rafmagnað andrúmsloft innan bílageirans. Jón Trausti Ólafsson, forstjóri Öskju og formaður Bílgreinasambandsins, er einn gesta í þætti Jóns G. Haukssonar í kvöld. Allt stefnir í að verð á nýjum bílum, nema rafmagnsbílum, hækki um 35% í tveimur hækkunum 1. september og 1. janúar nk. í gegnum EES-samninginn vegna nýs mengunarmælikvarða Evrópusambandsins. Mikill þrýstingur er núna á Bjarna Benediktsson fjármálaráðherra um að grípa til aðgerða og lækka t.d. vörugjöld á bílum. 

Jón Trausti segir að Danir og Svíar hafi gripið til aðgerða og lækkuðu Danir vörugjöld á bílum. Hann segist vongóður um að fjármálaráðherra bregðist við þessum vanda.

„Ef ekkert verður að gert eru líkur á að verð á bílum fyrir utan rafbíla sem ganga 100% fyrir rafmagni, muni hækka um 25 til 35% í tveimur hækkunum 1. september og 1. janúar,“ segir Jón Trausti.