Rafmagn fór af Akureyri á ellefta tímanum í kvöld og er símasamband þess utan ekki sem skyldi í bænum.
Óveðurslægðin teygir sig nú yfir landið og hefur þegar skekið allt Suðurland, Suðurnes og höfuðborgarsvæðið.
Engin slys hafa enn frést af fólki, en eignatjón er talsvert, einkum í Eyjum.
Óveðrið magnast nú á Norðurlandi, en sækir Vestfirði seinna í nótt.
Uppfært: Rafmagn komst á á Akureyri seint í gærkvöld.